Ýktar pælingar og sögur úr samtímanum.
17.02.2008 12:11:52 / sixter

Jæja

Hvernig væri það nú að segja ykkur eitthvað. Alltaf þegar ég ákveð að skrifa eitthvað kemur ekkert. Lífið er fínt hjá mér, í fínu formi og jákvæður með eindæmum. Ég veit hreinlega ekkert hvað ég á að skrifa. Ömurlegur leikur í gær og var hann búinn á 10 mínotu, enginn barátta eða neitt.
Hvernig væri það ef þið kommentið eitthvað sniðugt og ég fæ hugmyndir fyrir næsta blogg hahahahahaha æji nenni þessu ekki.
Hafið það gott elskurnar

» 10 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 23:04:19 / sixter

Ónefnd færsla

Jæja Alla mín og nærsveitamenn og konur, nú er komið að því, ég ætla segja ykkur eitthvað af því sem ég hef verið að gera síðust daga.

Jólin voru mjög góð EN mér finnst þessi tími fake, maður reynir að halda í línunar og peningana sína allt árið en svo á þessum tíma gæti manni ekki verið meira sama og springur í einhverri geðveiki. Það er kannski eitthvað annað orð sem hægt er að nota um þetta ástand okkar en fake en mér finnst við vera að snúast gegn öllu sem maður er að stefna að allt árið EN svona eru jólin eins og var sungið í einhverju lagi svo fallega EN ekki misskilja mig ég elska jólin og allt sem þau standa fyrir EN mér finnst átið verst/best EN samt stunda ég það upp á 10 eins og þið flest. Áramótin voru líka Góð.

Það eyddist allt út sem ég var búinn að skrifa meir en þetta og ætla ég ekki að endurtaka það núna, bíðum betri tíma. Skrifa það fljótlega.

Verum hress ekkert stress blessbless


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 23:20:46 / sixter

Same old shit just diffrent day nah

Hvað segiði nú gott elsku dúllurnar mínar? Vá hvað maður er fljótur að venja sig á gamla slæma lífsstílinn aftur í sambandi við skyndibita og óhollustu. Ég trikka alltaf sjálfan mig með því að hugsa, ég er að æfa og má/þarf að borða meir og óhollara, því ég er að æfa maður. Þetta er það sem ég ætla að breyta aftur í vikunni, ég var orðinn svo helvíti harður á matarræðinu. Litlujólin voru í gær í vinahópnum og fórum við á Ban Thai, Ágætis staður en væntingar mínar voru kannski alltof miklar. Fékk mér humar sem var fínn, ef maður ætlar að fá sér humar fer maður á fjöruborðið!!! Svo var haldið heim til Stebba og Elvu og spilað nýju útgáfuna af Party & co og var það bara mikið fjör. Upphaflega planið var að elda heim hjá þeim einhverjar kræsingar, en það var hætt við það, en á næsta ári mæli ég með að við höldum okkur við það. Það myndast alltaf svo góð stemning í svoleiðis veislum, en ég er ekki að segja að hitt hafi verið leiðinlegt langt frá því. Ég var í bolta áðan og sökkaði feitt!!! men þetta var skelfing en við unnum fleiri leiki en hitt liðið, vorum meir að segja einum færri.  Ég fór snemma á pöbbinn til að fá sæti fyrir leikina sem voru í dag, en nei 40 mín fyrir fyrri leikinn nægðu ekki, allt stappað. Horfðum á fyrri hálfleikinn standandi og fórum til 5ba síðan og gláptum á seinni þar og aðal leikinn. 5bi kom með þennann smellna brandara um Poolara af því þegar þeir tapa verða þeir svo óþolandi og líka þegar þeir vinna en þeir eru svo liverfúlir þegar þeir tapa ahahahahahahahahahahahahaha.

Jæja nóg í bili yfir og út                                                                                                                           

  


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:36:57 / sixter

Blank, skunk, klank

Sælir krakkar mínir. Já roadrage, mér hefur yfirleitt fundist það ógeðslega gaman að æsast aðeins yfir engu en í dag kom roadrage dauðans, shit ég varð triltur!!! Ég rétt mundi eftir að skrá mig í stöðupróf í gær og ætlaði að taka það með trompi en viti menn gleymdi ég ekki prófinu um leið og ég labbaði út þaðan í gær. Svo allt í einu í dag, út í Hafnarfirði mundi ég eftir því og átti 2 staði eftir að fara á, shit ég fór að keyra eins og vitleysingur að reyna að ná þessu, en nei þá byrja allir að keyra eins og það væri sunnudagur(fannst mér), og ég ætlaði að skipta um disk hann vildi ekki koma út og ég lét mælaborðið aðeins finna fyrir því. Ég var búinn að afskrifa prófið en var samt búinn að hringja í Jóa og biðja hann að keyra fyrir mig síðasta klukkutímann og hann játti því. En svo auðvitað náði ég í prófið og held að ég nái nokkrum einingum útúr því. Það er svo fyndið hvað maður getur stressast upp á svona hlutum, ég tel það alveg eðlilegt upp að vissu marki. Ég tel mig ekki vera stressaða týpu og ég get t.d. unnið rosalega vel undir stressi, ég fer í einhvern keyra hratt gír sem ég elska, út með pappírinn og aftur upp í bíl. En líka það að þessir Hafnfirðingar eru séstakar týpur, panta oft á dag og vilja allt strax og leið og maður kemur til þeirra þá segja þeir ertu ekki með G-Print( pappírstegund) og ég svara nei, þá kemur: þú kemur bara með það næst. Þeir halda að þeir séu miðpunktur alheimsins æji nenni ekki að bulla meir um þá.

Góð helgi framundan: út að borða, super sunday, og endalaus hamingja. Þegar ég skrifaði um daginn endalaus hamingja þá var ekki endalaus hamingja, bara svona aðsegja ykkur það hahahahahaha en núna er bleika skýið mitt komið aftur  


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 20:36:03 / sixter

Frostljós

Sæl og blessuð öll sömul. Frostið er ekkert smá mikið þessa daganna og breytist ekki mikið held ég, við erum nú vön þessu. Ég er búinn að finna ágætis leið til að fá hita í kroppinn, hef 2 skellt mér bara í ljós í hádeginu, ekkert smá næs. Hita sig vel fyrir seinnipartinn. Svo er rútínan mín byrjuð aftur, ekkert smá gott. Ég er með svaðalega góða rútínu!!!!! Djöfull var gott að komast í bolta í gær!!

Kítki í nýja Hagkaup áðan, það var svo lítið af fólki þar að ég veit ekki hvernig þetta á eftir að ganga hjá baugs mönnum. Svo varð ég auðvitað að kíkja á "karla hornið" sem er þarna. Gott uppátæki, en 3 stólar kommon. Ef það verður eitthvað að gera þarna í framtíðinni eiga meiri hlutinn af körlunum eftir að þurfa að versla með konunum;)

Svo kíkti ég á Helgu Nínu í gær og Þórð og Öllu. Mjög gaman af litlu skvísunni. Þau buðu mér svo í mat mjög ljúfengt og bakstur líka snild. Jæja þetta er barasta komið gott í bili, bolti í kvöld og endalaus hamingja.  

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 20:51:41 / sixter

Hringavitleysa.

Jæja gott fólk, ég hef verið mikið að pæla í orðunum "alæta á tónlist" og spurt nokkra hvað þeim finnst um þetta og er ég hvergi nær. Hvað er að vera "alæta á tónlist"? Það sem mér dettur helst í hug er að manneskja sem fílar eitthvað úr öllum tónlistargeirum sem ég hélt að ég gerði en ég finn ekkert britt popp sem ég fíla, þannig eins og ég álít "alætu á tónlist" er ég ekki alæta. Ég fíla samt alveg ótrúlega mikið af djönki, var búinn að finna úr öllum stefnum tónlistar sem ég veit um eða mundi þá nema britt poppi, en fyndið leið og ég skrifaði stefnum tónlistar þá fann ég eina sem ég man ekki eftir neinu sem ég fíla, Abjent(veit ekkert hvernig á að skrifa það;) er eitthvað sem ég hef HELD ég aldrei tengt við og svona sýru drasl, skruðningar og læti, man ekki eftir neinu úr því heldur sem ég digga. Þannig að ég er endanlega kominn á þá niðurstöðu að ég er ekki "alæta á tónlist" eftir minni skilgreiningu á því hugtaki. Ég nefnilega þoli það ekki þegar fólk segir að það sé "alæta á tónlist"!!! "Ég fíla allt nema rapp og heavy metal" hver hefur ekki heyrt þetta áður og svo hlustar manneskjan bara á FM 957 og lætur mata sig af óþverra tónlist, Æji ég veit það ekki, kannski er minn tónlistar smekkur bara svo perfect að ég þoli ekki það sem annað fólk fílar en segjist skilja það mjög vel hahahahaha. Þetta er nú meiri þvælan. Hættur

Hafið það gott um helgina dúllurnar mínar og ekki gera mikið af ykkur.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 18:13:02 / sixter

Jack Sparrow

Sæl og blessuð öll sömul. Helgin að enda og ekkert af því sem ég ætlaði að gera komst í verk sökum eins lítils sandkorns. Mér tókst að fá sandkorn inn fyrir himnuna og þurfti að skera kornið burt. Þannig að þessi helgi var svona sjóræningja helgi, með lepp á hægra auga. Ég gat lítið sofið  föstudagsnóttina vegna verkja og ekki ætlaði ég á bráðamótökuna og sitja þar og kveinka mér í marga tíma, maður hefur heyrt að fólk bíði þar oft mjög lengi eftir því að komast inn. En þegar ég vaknaði fór ég á læknavaktina og beið þar í smá tíma, en þegar ég fór inn beið mín hress læknir sem ætlaði að hjálpa mér. hún sagði mér hvað þetta var og byrjaði á því að deyfa augað sem var ljúft og svo byrjaði hún á að krufla í því sem mér var ekkert rosalega vel við. Hún bað mig að vera samvinnu þýðan sem ég var síðan og hún náði korninu. Svo sagði hún mér að hún hafi þurft að skera það burt og ég sagði henni að ég væri mjög ánægður að hún hafi ekki sagt mér það áður en hún byrjaði því þá hefði ég örugglega endað með það í auganu þangað til ég hefði nauðsynlega þurft að ná því vegna verkja. En ég er laus við leppinn og fæ frí í vinnunni út á þetta en missi af bolta. Þannig að fríið ætti að gefa mér tíma í að gera eitthvað af hlutunum sem ég ætlaði mér að gera yfir helgina.

En að missa af bolta þoli ég ekki, sérstaklega núna því ég hef ekki upplifað svona óhollustu helgi lengi. Svona er þetta nú bara, róleg helgi að baki og eitthvað verður mánudagurinn rólegur líka. Jæja kveð í bili.


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 19:55:10 / sixter

Sjálfsafgreiðsla

Sælar. Ég fór í Krónuna í dag og lenti í svolitlu fyndnu atviki sem þið eigið eflaust eftir að upplifa sjálf eða hafið og ég er bara svona seinn og enginn hefur sagt mér frá þessu. Maður getur labbað inn í Krónuna upp á Bíldshöfða og afgreitt sig sjálfur nohhh myndu nú margir segja og ég er alveg sama sinnis, þetta er snild!! En ég veit ekki hvernig þetta er ef þú ert með mikið af djönki, þetta er allaveganna mjög þægilegt þegar maður er með lítið eins og ég í dag, var með 3 hluti. Svo ekki skemmir að það er byrjað að flytja inn sætar pólskar stelpur í þjónustustörf, ein í Krónunni og ein á landflutningum.

Svo gleymdi ég alveg að minnast á að ég sgði fólkinu í vinnunni að hoppa upp í rassgatið á sér fyrir viku síðan, varð svo reiður að ég titraði. Ákvað að klára mína kökusneið og fara niður. Langt síðan ég hef misst mig svona rosalega, svo hringdi ég í einn sem ég tala alltaf við ef ég þarf að kvarta og sagði honum að ég hefði misst mig og hefði átt að haga mér öðruvísi en þá sagði hann að það hafi enginn tekið eftir þessu, bara hann. Samt sátu allir þarna. Það var ekkert minnst á þetta meir. Hann benti mér á að fara á reiði námskeið en þeir sem þekkja mig vita það að ég þarf ekkert svoleiðis. Þetta var allt út af mjólk, reyndar ekki alveg, ég var kallaður letingi fyrir að nenna ekki að ná í mjólk og fékk svaka augnaráð og forstjórinn muldraði eitthvað. Þetta fékk mig til að brjálast!!!

Jájá er þetta ekki bara gott í bili, nei Halldór er 9 ára í dag Til hamingju með það Halldór minn.

Bæbæ


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 21:14:07 / sixter

Spegill,spegill hermd þú mér

Halló krakkar. Þreyttur dagur, ég er að segja ykkur það að miðvikudagar hata mig eða ég hef ekki sofið nóg og djöflast of mikið, hummm æji kenni bara miðvikudögum um þetta. Djöfull er tónlist góð!!!! Ég þoli samt ekki eitt, ég skrifaði þennann svaka disk með hinu og þessu guddý stuffi en nei spilarinn í vinnubílnum ákvað að vilja ekkert með hann hafa, mér var búið að hlakka ekkert smá til að hlusta á hann yfir daginn og lina þjáningar mínar að þurfa að vinna. Kannski virkar hann á morgun, kannski var þetta bara svona miðvikudags grín í spilaranum sem mér fanst ekki fyndið. Ég hitti Gunna bróðir um daginn sem er ekki frásögu færandi nema hvað að hann er alveg jafn steiktur og ég, hann sagði mér að hann hafi verið búinn að horfa svoltið í spegil og sá það að við erum með sama glottið. Fyndið að sjá sjálfan sig í öðrum, við erum nokkuð líkir, ekki leiðum að líkjast. Talandi um spegil þá elska ég spegla þessa daganna, alltaf að spegla mig í ræktinni. Ekki frammi samt, það er ógeðslegt. Inni í klefa bara. Afhverju er ég að skrifa þetta, þetta hljómaði miklu fyndnara í hausnum á mér.

Höfum þetta bara stutt í dag, takk þið sem kvittuðuð síðast. Fínt að vita þetta svo maður geti nú baktalað alla hina ahahahahahahaha neinei. En hvað ætli málið sé eru einhver stikkorð sem ég skrifa sem eru vinsæl, æji ég veit það ekki.

Adios amigos


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 15:50:58 / sixter

Eitthvað taut

Góðan daginn fólk. Ég hef verið að velta því fyrir mér hverjir eru að skoða þessa síðu því heimsóknirnar eru rosalega margar en sama sem enginn komment, væri alveg til í að fá fleiri komment frá ykkur þó svo ég þekki ykkur lítið, bara að sjá hverjir eru hérna á daginn. Ég fór í afmæli til Ingu í gær og var það ógeðslega gaman, nóg af góðum mat og kökum og tekið í spil. Fyndnasta mómentið var þegar Árni maður Lenu vinkonu Ingu var að leita eftir Jón Oddi og Jón Bjarna en náði bara að segja Einar og Jón Bjarni, maður blokkast stundum en þetta var óborganlegt. Föstudagskvöldið fór í Gitar Hero og chill. Ég er allur að koma til í þessum leik en á langt í land með að vera jafn góður og Davíð og Stebbi. Svo er bolti í kvöld og ætla ég að hlaupa af mér kræsingar gærkvöldsins.

Virðingarfyllst

Sigurður H


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 20:14:32 / sixter

Dude where´s car?

Komiði blessuð og sæl börnin góð. Hvar á ég að byrja? Ég er búinn að kaupa mér ferð til Hollands jibbý. Var í baði með þvílíkar pælingar um hvað ég ætti að skrifa en man ekkert af þeim, fyndið. Uppá síðkastið hef ég verið að gleyma hlutum eins og í gærkvöldi þá kíkti ég á Davíð og þegar ég var að fara fann ég ekki bílinn minn úti á plani, mundi ekki hvar ég lagði. Labbaði á neðra planið sá ekki bílinn minn þar en sá svo einn bíl bakka á fleygi ferð og ég þrammaði á eftir honum hélt að það væri verið að stela mínum en svo stóð gaurinn uppúr bílnum opnaði aftur hurðina og náði í skólatöskuna sína og ég eins og asni stend þarna á miðju bílaplani hummmm. Hvar í andskotanum lagði ég? Svo mundi ég það við fórum upp á Sport kaffi að horfa á Englendingana tapa. Fannst þetta nokkuð fyndið, tilbúinn að taka í einhverja vandræða unglinga úr Grafarholtinu.

Miðvikudagar. Afhverju í andskotanum er þessum degi illa við mig? Ég man ekki eftir góðum miðvikudegi í langann tíma. Þessi dagur er eitthvað sem ég nenni ekki að vakna í, það er eitthvað skrítið væb. Kannski er þetta þrjóska í mér að þola ekki miðvikudaga eða eitthvað annað það er eitthvað. Ég skil þetta ekki. Kannski er þetta útaf því að þetta er mið vika og langt í helgi ennþá, ég bara hreinlega veit það ekki. Það er eitthvað þunglyndi sem kemur yfir mig á miðvikudögum. Þessvegna hef ég ákveðið að gera eitthvað við þessa daga t.d. hádegisfundur, miðvikudagsviðreynsla eða bara eitthvað fyndið,skemmtilegt eða grátbroslegt. Eins og t.d. í gær ætlaði ég að vera aðal spaðinn og reyna við eina stelpu í ræktinni, ég endaði með að panta mér fitumælingu hahahaha en hún fækk númerið hjá mér( til að hringja í mig útaf mælingunni hahaha þetta var ömurlegt en grátbroslegt).

Myndirnar sem ég lofaði að henda inn á myspace koma inn í kvöld!!!!!!!

Hummm það var eitthvað miklu fleira sem ég ætlaði að skrifa. Já ég ætlaði að skrifa eitthvað um tilgang lífsins en ég held að ég geymi það til betri tíma. Hummm jájá eigum við ekki að segja þetta bara gott.  


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 22:35:39 / sixter

Stutt stórra högga á milli!!!!

Jæja þá bíð ég ykkur hjartanlega velkominn að tölvuskjánum. Ég var að koma úr bolta sem er ekki frásögu færandi nema hvað að ég held áfram að meiða mig. Fyrst var það högg á hnéið sem var alveg drullu vont í viku en marið var 3 vikur að fara, svo fékk ég högg á sköflunginn í vikunni á eftir og svo núna á sunnudaginn þá fékk ég boltann í punginn ekkert smá gott eða þannig. Þannig að ég hélt að ég hefði verið búinn að taka út kvótann af höggum en NEI fékk ég ekki högg á sama stað á sköflungnum áðan heavy vont og ég er ennþá að drepast. Hvaða anskoti sagði að íþróttir væru hollar hahaha neinei ég elska fótbolta og ætla að vona að þessu linni í bili.

Sumarbústaðaferðinn var fín eins og ég bjóst við, samt á föstudagskvöldinu spáði ég í því hvað í anskotanum ég væri að gera í bústað með eintómum fyllibyttum en ákvað að hætta að spá í því og skemmta mér vel í staðinn sem ég gerði. Það voru tekinn létt dansspor að hætti gamla rokk tímabilsins snúningar og læti, Davíð var minn partner og dönsuðum við eins og brjálæðingar( þið sem voruð ekki þarna haldið kanski að þetta hafi verið eitthvað homma stöff en nei þetta var cool stöff og ættuð þið að fara að hugsa ykkar gang ef það sú fluga flaug í gegnum hausinn á ykkur) gegnum klofið og alskonar rokkabilly. Ég og Elva rústuðum singstar, bjóst nú ekki við öðru!! Það er greinilegt að það er ættgeng söngrödd í mér;) Ég ætla að henda inn myndum á myspace úr þessari ferð á morgun, næ ekki að setja myndirnar inn í mína tölvu þarf að henda þeim inn í aðra og copy-ja þær á disk, nenni því ekki núna.

Blind Mellon diskurinn sem ég keypti er að kikka rosalega inn, rosalegur diskur. Nú nennir maður varla að hlusta á "No Rain". David Bowie diskurinn olli mér vnbrigðum en er samt ágætur, nokkur góð lög á honum samt.

Jæja eigum við ekki að segja þetta gott í bili.

P.S. Þið vitið að hringlótt er form.. Haldið ykkur í formi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 23:53:17 / sixter

where is my desteny? Það kemur belive you me!!!!!!

Veriði hjartanlega velkomin á plássið mitt á netinu. Ég hef ekki frá miklu að segja nema það að ég er í fríi á morgun og ég elska frí. Ætla samt að taka daginn snemma og skella mér í ræktina svo ég hafi samvisku í að borða virkilega óhollt um helgina, maður er nefnilega að standa sig svo ógeðslega vel að ég hefði aldrei trúað þessu sjálfur. Ég er að detta í 95 kg úr 105,7 sem er bara þokkalegasti árangur. Ég er hvergi nærri hættur þar og ætla að stefna á 70 kg hahaha djók. Ég nenni þessu púli ekki lengur og ætla að lyfta meir. Eftir ræktina ætla ég á hádegisfund með Gunna og við fáum okkur eitthvað gott að borða, svo er lagt af stað í bústað. Mér er búið að hlakka mikið til þesarar ferðar og ætla ég að hafa það ógeðslega gott. Svo er spurning að kíkja á fund á Selfossi og sjá hvernig hnakkarnir fara að þessu.

Ég hef ákveðið það að skella mér til Hollands eftir áramót í heimsókn til Steina og Saskiu, það verður ekkert nema eintóm hamingja! Þau eru búin að bjóða mér þennann fína svefnsófa til að gista á.

Svo verð ég aðeins að monta mig af Láru litlu systir, hún komst áfram í bandinu hans Bubba. Frábært hjá henni!!! Það voru bara 4 stelpur sem komust áfram af 30 mans held ég. Hún á eftir að rústa þessu.

Jæja þetta er komið nóg ætla að fara að gera ekkert eins og ég geri oft þegar ég nenni ekki að fara að sofa. En að spáið í því að nenna ekki að fara að sofa hummm afhverju nennir maður ekki oft að fara að sofa? Skil það ekki!! 1. það er gott að sofa 2. það er gott að vakna og vera úthvíldur daginn eftir 3. Það er gott að hafa góða rútínu

P.S. Það eru komnar nokkrar myndir frá Litháen á myspace-ið mitt en sökum lélegrar myndavélar þá komu bara nokkrar vel út. www.myspace.com/sixterino


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 00:07:56 / sixter

Má bjóða ykkur í kaffi?

Komiði sæl og blessuð börnin mín góð. Ég verð að segja ykkur frá för minni, Freys og Tinnu í Krossinn, þetta fanst mér gaman!!! En samt of mikið fyrir mig. Gunnar er snillingur, hann heldur öllum á sínu bandi, er alvarlegur,grínar og fer með orð guðs. Hann hlær samt eins og hann sé djöfullinn í mannsmynd. Það var talað um fyrirgefninguna og fanst mér það virkilega skemmtilegt að hafa lent á því umræðuefni því öll þurfum við að læra að fyrirgefa. Svo auðvitað þurftu þeir að troða homma hatrinu sínu inn í þetta allt saman sem var bara fyndið, " 1% af þjóðinni komu í bænagönguna en 99% mættu í soragönguna" þetta var bíó og fer ég aftur pottþétt!! Hafði bara virkilega gaman af þessu og ekki má maður gleyma tónlistinni sem er profesional. 2 af sönkonunum voru ógeðslega góðar, maður fékk gæshúð.

Það var bolti í kvöld, alltaf jafn hressandi þó svo við töpuðum öllum leikjunum nema einum. Ég þyrfti að koma mér í annann bolta, ég finn rosalega mikið fyrir hvað formið er orðið gott. Það er of stutt á milli boltanna, sunnudagur og þriðjudagur. Mætti færa þriðjudags boltann yfir á annan dag, æji þetta er bara fínt.

Fór á geisladiska markaðinn í Felsmúla áður en ég fór í Krossinn og náði mér í 4 diska, samt var ekkert þarna af viti. Keypti Blind mellon út af einu lagi, No rain. Diskurinn er ágætur en ekki það sem ég bjóst við. Svo keypti ég Public enemy, sem er líka bara ágætur, langaði í hart old school rapp en þessi er smá harður en ekki nógu. Keypti líka David Bowie safndisk sem ég veit að er góður og Hail to the thief með Radiohead sem er fínn. Svo fann ég líka eitt sem mér hefur lengi langað í og það er DVD með atburðum síðustu aldar, hef ekki horft ennþá á það en held að það sé fróðlekt. Það var samt ekkert af viti þarna, mjög lame markaður!!!

Jæja ef það birtist ekkert hérna fyrir helgi þá verð ég upp í bústað að chilla, hlakkar alltof mikið til, þetta er svona eins og þegar maður var krakki og maður BEIÐ eftir fyrsta snjónum.

SEEYHA FOLKS


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 13:07:33 / sixter

Halelúja Gunnar!

Og það er fjör og það er fjör

Fór í party í gær til Nonna og það var upplyfting, mjög gaman! Fyndið hvað við getum skemmt okkur við fáranlegustu aðstæður. Þannig er mál með vexti að þegar við komum var yfirfullt í stofunni hjá Nonna og ekki auka stóll á svæðinu, þannig að við skelltum okkur inn í eldhús og sköpuðum okkar eigin party=eldhúsparty. Við byrjuðum á spjalli svo fórum við í rímkeppni sem var ágæt en svo kom þessi snildar leikur "FYRRIPARTUR" og svo kepptumst við við að botna og komu frekar fyndnir fyrripartar og mjög djúpir, eins og einn frá Sigurjóni= Á meðan örbylgjuofninn sefur.... enginn mun þá borða. Man nú ekki hvernig hann var botnaður eða hvort þetta sé orðrétt hjá mér en allaveganna var þessi leikur frábær og virkilega fyndinn. Svo fundum við annað lag til að fara í búmmbúmm leikinn og er það "Eye of the tiger" sem tryllir líðinn. Ýmindið ykkur dúmmmm....dúmdúmdúm...dúmdúmdúmmmm. Algjör snild.

Ég er búinn að kaupa flestar jólagjafirnar sem er algjör snild. Fór með Ingu í "just for kids" og verslaði þar fyrir lítinn pening 6 gjafir og svo yfir í byko sem var líka að opna og keypti þar eina. Þetta var nokkuð fyndið ég bjóst við fullt af fólki og biðröðum en maður labbaði í allt og náði því sem maður ætlaði sér án nokkurs troðnings eða biðraða á kassa. En maður getur ekki farið í innkaupaferð án þessa að kaupa eitthvað handa sjálfum sér. Ég fékk jakka, sem ég er ógeðslega sáttur með og nærbuxur. Ég hef verið á einhverju nærbuxna "rampagei", hef nánast endurnýjað nærbuxna hilluna, vantar einar uppá að hafa keypt eina fyrir hvern dag.

Ég,Freyr og Tinna ætlum að skella okkur í krossinn í dag og upplifa samkomu að hætti Gunnars Þorsteins sem ég dái. Hann er að komast á sama stall og Gísli Marteinn hjá mér sem er góðs viti fyrir hann. Ég trúi á guð en ofsatrú er ekki fyrir mig( að ég held maður nefnilega veit það ekki fyrr en maður hefur smakkað á því;). Vinnufélagar mínir trúa því ekki að ég komi ekki heilaþveginn út. "i´m gonna prof them wrong". Það er gott að trúa og leita ég stundum í æðri mátt en ofsatrú, hef bara ekki tíma fyrir það. 

Jæja nú hef ég skrifað nóg....

kominn tími til.... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7